Verslun á hjólum

Árið 2025 tókum við gamlan strætisvagn og innréttuðum hann sem verslun. Strætisvagninn var í geymslu á Snæfellsnesi og náðum við í hann í byrjun maí og komum með hann á verstæðið okkar í Mosfellsbænum.

Þetta sumar var yngsti starfskrafturinn með okkur hún Katla Rún sem var 1 og hálfs árs og tók hún það verkefni á sig að vera sjálfskipaður verkstjóri. Það var svo mikil spenna á að byrja strax á verkefninu svo það var ekki eftir neinu að bíða en að byrja bara!

Við tókum öll sæti út úr vagninum og þrifum hann að innan. Svo var bara að byrja að smíða innréttingar en við notuðum spýtur sem voru notaðar til að flytja inn gler til landsins. Við naglhreinsuðum þær, slípuðum til og brenndum aðeins til að fá þessa áferð.

Aftast í vagningum er smá starfsmanna aðstaða svo hægt sé að hella sér uppá kaffi og tylla sér.

Katla vildi þetta sæti inn aftur.

Svo að sjálfsögðu var það gert.

Komin smá mynd á hvernig allt saman á að vera.

Gott að hafa skrúfustjóra

innkaupastjóra og sendil

Vagninn orðin klár.

Þá var ekkert annað að gera en að bruna af stað með hann vestur í Grundarfjörð.

Þegar strætisvagninn var kominn vestur í Grundarfjörð byrjuðum við á að stilla upp vörunum því fyrsta skipið var að koma í höfn daginn eftir.

Strætisvagninn var á Grundarfjarðarhöfn um sumarið og tók á móti ferðamönnum sem komu með skemmtiferðaskipum. Guli strætóinn vakti mikla lukku.




 

Sumarið 2025 var svo skemmtilegt að við fjárfestum í öðrum strætisvagni (örlítið stærri) og erum við á fullu að smíða hann. 

Við munun að sjálfsögðu koma með nýja frétt þegar nær dregur sumrinu.